|
Vortónleikar Uppsveitasystra |
|
Skrifað af Elín Jóna Traustadóttir
|
|
þriðjudagur, 15 apríl 2008 |
|
Föstudagskvöldið 18. apríl kl. 20:30 munu Uppsveitasystur halda tónleika í Félagsheimili Hrunamanna. Á efnisskránni er gospeltónlist, negrasálmar og lög úr ýmsum áttum. Einnig koma góðir gestir fram á tónleikunum, en þeir eru Stúlknakórinn Hekla undir stjórn Nínu Maríu Morávek og tvær ungar stúlkur úr Flúðaskóla munu flytja nokkur lög. Stjórnandi Uppsveitasystra er Magnea Gunnarsdóttir og undirleikari er Stefán Þorleifsson. Aðgangseyrir er 1.500 kr. Frítt fyrir grunnskólabörn.
Vonumst til að sjá sem flesta.
|
|
Tónleikar og styrktarlínur |
|
Skrifað af Elín Jóna Traustadóttir
|
|
þriðjudagur, 25 mars 2008 |
|
Uppsveitasystur munu halda sína fyrstu sjálfstæðu vortónleika föstudaginn 18. apríl. Þar munum við syngja lög frá ýmsum löndum og er þema kvöldsins að stelast burtu og fara heim.
Um þessar mundir erum við að safna styrktarlínum í söngskrána okkar og eru allar klær úti því rekstur kvennakórs kostar sitt eins og allt annað.
Þeir sem eru áhugasamir um að styrkja okkur geta haft samband í netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
til að senda inn styrktarlínu eða auglýsingu.
- Styrktarlína (nafn í söngskrá) kr. 2.500
- Auglýsing (1/4 A4 blað) kr. 5.000
- Auglýsing (1/2 A4 blað) kr. 15.000
|
|
Skrifað af Elín Jóna Traustadóttir
|
|
þriðjudagur, 05 febrúar 2008 |
|
Meðfylgjandi er könnun sem gerð er af nemendum viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík í áfanganum Hagnýt tölfræði. Okkur þætti vænt um ef þið gæfuð ykkur tíma til að svara könnuninni fyrir okkur. Tilgangur könnunarinnar er að komast að því hvort kórstarf hafi áhrif á sjálfsöryggi fólks og hvetji það jafnvel til söngnáms. Þetta er örstutt könnun, aðeins 15 spurningar, og ætti ekki að taka meira en 2-3 mínútur að svara. Athugið að fyllsta trúnaðar er gætt og svör verða ekki rakin til einstakra þátttakenda. Þátttaka þín í þessarri könnun er okkur mikilvæg og viljum við því þakka þér kærlega fyrir að taka þátt.
Vinsamlegast smellið með músinni á hlekk hér að neðan til að taka þátt í könnuninni eða afritið (copy/paste) í vafrann (broswer) ykkar.
http://www.createsurvey.com/c/63022-hfVpm8/
Með kveðju, Hafdís Helga og Aðalheiður
|
|
|
Starfið komið á fullt eftir jól |
|
Skrifað af Elín Jóna Traustadóttir
|
|
laugardagur, 19 janúar 2008 |
|
Nú eru systurnar farnar að hittast aftur og Magnea komin til starfa á ný. Spennandi tími framundan þar sem við ætlum að fara í æfingabúðir í febrúar og síðan að halda tónleika á Flúðum 18. apríl.
Atburðadagatalið er komið út en þó er það ekki fullklárað. Stebbi er nú ekki alveg laus við okkur þar sem hann ætlar að spila undir með okkur í vor.
|
|
|
Grúví gospel og dásamleg dægurlög |
|
Skrifað af Elín Jóna Traustadóttir
|
|
sunnudagur, 11 nóvember 2007 |
|
Mánudaginn 19. nóv. nk. munu tveir kórar halda tónleika í Þorlákskirkju. Um er að ræða Uppsveitasystur undir stjórn Stefáns Þorleifssonar og Gospelkór Tónsmiðjunnar undir stjórn Eyrúnar Jónasdóttur. Undirleikur verður í umsjón Djassbands Suðurlands. Uppsveitasystur eru nú á öðru starfsári sínu og er Stefán stjórnandi þeirra tímabundið en aðalstjórnandi þeirra er Magnea Gunnarsdóttir. Gospelkór Tónsmiðjunnar var stofnaður í haust og kemur nú fram í fyrsta sinn. Djassband Suðurlands hefur verið starfandi frá því 2005 og er skipað Róberti Dan Bergmundssyni, bassaleikara frá Þorlákshöfn, Stefáni Ingimar Þórhallssyni, trommuleikara frá Laugalandi, Stefáni Þorleifssyni, píanóleikara frá Selfossi og Trausta Erni Einarssyni, gítarleikara úr Reykjavík.
Efnisvalið er blanda af grúví gospeli og dásamlegum dægurlögum.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og er aðgangur ókeypis.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 6 af 13 |