|
Written by Kvennakór
|
|
Haustæfingar kvennakórsins eru hafnar í Brautarholti á mánudagskvöldum kl:20.30.
Stjórnandi kórsins er Gróa Hreinsdóttir.
Næsta mánudagskvöld er opin æfing og allar konur sem alltaf hefur langað að prófa eru sérstaklega velkomnar.
Um að gera að koma og vera með. |
|
Haustsöngur í Uppsveitum ! |
|
Written by Elín Jóna Traustadóttir
|
|
Kvennakórinn Uppsveitasystur hefur fengið til liðs við sig nýjan stjórnanda á meðan Magnea Gunnarsdóttir verður í leyfi.
Gróa Hreinsdóttir heitir stjórnandinn og starfar hún einnig sem organisti við Hveragerðis- og Kotstrandarkirkjur.
Fyrsta æfing haustsins verður í Brautarholti á mánudagskvöldið kemur 13. september kl 20:30.
Söngelskar konur velkomnar !! |
|
Written by Elín Jóna Traustadóttir
|
|
Það er margt framundan hjá okkur í USS, æfingadagur föstudaginn 5. febrúar og laugardaginn 6. febrúar í Skálanum í Myrkholt. Síðan er messa í Skálholti á konudaginn þann 21. febrúar.
Mikil leynd hvílir yfir vortónleikum kórsins sem verða 10. apríl, en eitt er víst að þeir verða öðruvísi og skemmtilegir.
Kórkonur ný lög eru komin inn en munið að kíkja í tölvupóstinn þar er notendanafn og lykilorð, notið það í innskráningarformið hér til vinstri. |
|
|
Written by Elín Jóna Traustadóttir
|
|
Ný lög komin inn en munið að kíkja í tölvupóstinn þar er notendanafn og lykilorð, notið það í innskráningarformið hér til vinstri. Einnig eru upplýsingar um reikningsnúmer fyrir þá sem eiga eftir að borga félagsgjöldin
kv. Stjórnin |
|
Vetrarstarfið hafið á fullu |
|
Written by Elín Jóna Traustadóttir
|
|
Nú er vetrarstarf Uppsveitasystra hafið á fullu og eru um 30 konur að æfa núna. Að vanda er Magnea með létt og skemmtileg lög sem við erum að æfa og límast þau misjafnlega vel á heilann á okkur. Aðalfundur kórsins verður haldinn á söngdegi okkar næstkomandi laugardag 10. október í Sunnulækjarskóla og eftir vonandi skemmtilegan dag saman förum við út að borða á Menam á Selfossi. |
|
|
|
|
|
|
Page 1 of 5 |