Innskráning

Ágæti kórfélagi
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

Meðfylgjandi er könnun sem gerð er af nemendum viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík í áfanganum Hagnýt tölfræði. Okkur þætti vænt um ef þið gæfuð ykkur tíma til að svara könnuninni fyrir okkur. Tilgangur könnunarinnar er að komast að því hvort kórstarf hafi áhrif á sjálfsöryggi fólks og hvetji það jafnvel til söngnáms. Þetta er örstutt könnun, aðeins 15 spurningar, og ætti ekki að taka meira en 2-3 mínútur að svara. Athugið að fyllsta trúnaðar er gætt og svör verða ekki rakin til einstakra þátttakenda. Þátttaka þín í þessarri könnun er okkur mikilvæg og viljum við því þakka þér kærlega fyrir að taka þátt.

Vinsamlegast smellið með músinni á hlekk hér að neðan til að taka þátt í könnuninni eða afritið (copy/paste) í vafrann (broswer) ykkar.

http://www.createsurvey.com/c/63022-hfVpm8/ 

Með kveðju, Hafdís Helga og Aðalheiður

 
Starfið komið á fullt eftir jól
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

Nú eru systurnar farnar að hittast aftur og Magnea komin til starfa á ný.  Spennandi tími framundan þar sem við ætlum að fara í æfingabúðir í febrúar og síðan að halda tónleika á Flúðum 18. apríl.

Atburðadagatalið er komið út en þó er það ekki fullklárað.  Stebbi er nú ekki alveg laus við okkur þar sem hann ætlar að spila undir með okkur í vor.

 
Grúví gospel og dásamleg dægurlög
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

hopmynd2007minni.jpgMánudaginn 19. nóv. nk. munu tveir kórar halda tónleika í Þorlákskirkju.  Um er að ræða Uppsveitasystur undir stjórn Stefáns Þorleifssonar og Gospelkór Tónsmiðjunnar undir stjórn Eyrúnar Jónasdóttur.  Undirleikur verður í umsjón Djassbands Suðurlands.  Uppsveitasystur eru nú á öðru starfsári sínu og er Stefán stjórnandi þeirra tímabundið en aðalstjórnandi þeirra er Magnea Gunnarsdóttir.  Gospelkór Tónsmiðjunnar var stofnaður í haust og kemur nú fram í fyrsta sinn.  Djassband Suðurlands hefur verið starfandi frá því 2005 og er skipað Róberti Dan Bergmundssyni, bassaleikara frá Þorlákshöfn, Stefáni Ingimar Þórhallssyni, trommuleikara frá Laugalandi, Stefáni Þorleifssyni, píanóleikara frá Selfossi og Trausta Erni Einarssyni, gítarleikara úr Reykjavík.

Efnisvalið er blanda af grúví gospeli og dásamlegum dægurlögum.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og er aðgangur ókeypis.

 
Starfið að komast í gang
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

M?vatn 064

Starfið hjá okkur er allt að komast í gang og mikil ánægja er með nýja kórstjórann okkar hann Stefán, enda ekki hægt annað Smile

Kórinn okkar hefur vaxið og dafnað og ánægjulegt er hversu mörg ný andlit eru að bætast í hópinn og býð ég ykkur allar hjartanlega velkomnar til okkar.

Aðalfundur Uppsveitasystra verður haldinn mánudagskvöldið 22. október kl. 21:30 en æfing hefst þann dag kl. 20:00.

Nú er bara að láta verða af því að fá vinkonur með á æfingu því við erum komnar til að vera.

Vefsíðan okkar er alltaf að þróast og ég hvet ykkur kórfélagar að skrá ykkur inná síðuna því hún verður einnig notuð sem netsamfélag fyrir okkur.

Kveðja

Ella Jóna

 
Haust 2007
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

Þá er komið að því að hefja 2. starfsár Uppsveitasystra.  Æfingar hefjast mánudaginn 17. september kl. 20.30, í Brautarholti.  Kórstjóri fram að áramótum er Stefán Þorleifsson, en síðan er stefnt að því að Magnea Gunnarsdóttir taki við okkur aftur.

Uppsveitasystur er ungur kvennakór í Uppsveitum Árnessýslu, við leggjum áherslu á léttmeti og gospel.

Áhugasamar "söngkonur" endilega komið og verið með.

Kveðja Stjórnin

 
«StartPrev12345NextEnd»

Page 3 of 5