Innskráning

Uppsveitasystur unnu Karlakór Hreppamanna
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

Um verslunarmannahelgina fór fram knattspyrnuleikur milli Uppsveitasystra og Karlakórs Hreppamanna.  Var þetta mjög óhefðbundinn leikur og leikreglur voru mjög fáar.  Það er þó samdómaálit viðstaddra að Uppsveitasystur hafi unnið leikinn.

Mótið héldu Vinir Útlagans og stóðu þeir vel að mótshaldi.  Með aðstoð frá Karlakórsmeðlimum tókst þeim að vinna hið harðsnúna lið Uppsveitasystra.

verlo_laugardagur_202a.jpg

 

 
Fréttir frá Uppsveitasystrum
Written by Elín Jóna Traustadóttir   
M?vatn 021Dagana 7.-10. júní sl. skunduðu tuttugu og ein kona af stað til Mývatns til að taka þátt í fimmtu kórastefnu Mývatns. Tilgangurinn var að æfa og syngja með tæplega hundrað öðrum konum undir stjórn Lynet Joy Jenkens sem er ein af þekktustu kórstjórnendum Bandaríkjanna, en Jenkens er með doktorspróf í stjórnun. Það var okkur mikill heiður að syngja undir hennar stjórn. Veðrið lék við okkur allan tímann og flugan líka. Á föstudeginum voru haldnir tónleikar í hvelfingunni í Laxárvirkjun. Þar komum við fram og sungum við góðar undirtektir. Kórastefnunni lauk svo með tónleikum þar sem 120 konur úr fjórum kórum sungu undir stjórn Jenkens. Við vorum allar sammála um að við munum lengi búa að þessari reynslu sem gagnast mun okkur í framtíðinni.

Við þökkum þeim sem styrktu þessa skemmtilegu ferð okkar norður í land.

Uppsveitasystur

 

 
Mývatn 2007
Written by Elín Jóna Traustadóttir   
Eftirminnanleg ferð á Mývatn er lokið og var þetta stórkostleg upplifun.  Myndir úr ferðinni eru komnar á myndasíðuna okkar og þakka ég ykkur öllum stelpur fyrir samveruna þessa frábæru helgi.
 
Opin æfing - Tónleikar
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

Uppsveitasystur

Mánudaginn 30. apríl halda Uppsveitasystur opna æfingu í Golfskálanum Efra-Seli. 
Ykkur er boðið að koma og taka þátt eða vera áhorfandi. 
Einnig munum við flytja afrakstur vetrarins. 
Stjórnandinn okkar Magnea Gunnarsdóttir mun vera við stjórnvölinn.

Góðir gestir koma í heimsókn en það er Kyrjukórinn úr Þorlákshöfn.  Stjórnandi kórsins er Gróa Hreinsdóttir

Við Uppsveitasystur tökum þátt í Sumartónleikum við Mývatnssveit í byrjun júní og munum við flytja hluta af þeim lögum sem við höfum verið að æfa fyrir það.

Aðgangseyrir er kr. 1.000 til styrktar ferðarinnar

Léttar veitingar í boði og barinn opinn eftir tónleika.

Stjórnin.

 
Skyrturnar komnar
Written by Elín Jóna Traustadóttir   
Hluti af skyrtunum eru komnar til mín.  Þ.e. stærri stærðirnar.
 
More Articles...
«StartPrev12345NextEnd»

Page 4 of 5