Innskráning

Nýtt lag í lagasafnið
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

Nýtt lag Að lindum er komið í lagasafnið frá Magneu.  Vinsamlegast athugið félagar að skrá ykkur inná síðuna hér til hliðar og þá opnast Tónlistarhnappurinn.

Nýjir félagar athugið að ég verð að samþykkja ykkur inn þannig að kannski komist þið ekki inná síðuna alveg strax.  :-)

 
Verkefnin framundan
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

Hauststarfið er nú hafið á fullu og búnar eru tvær æfingar.  Æfingastaður fyrir áramót er í Brautarholti og hefjast æfingar kl: 20:30.

Verkefnin raðast inn og koma þau til með að tínast hingað inná vefsíðuna eftir því sem staðfestingar fást um hvert og eitt þeirra.

Það sem er framundan er eftirfarandi: 

4. október 2008
  • Æfingadagur í Sunnulækjarskóla hefst kl. 13:00
  • Aðalfundur USS hefst kl. 17:30
  • Kvöldmatur á Menam kl. 19:00
  • Mikilvæg að sem flestir mæti þó ekki sé nema hluta úr degi.

10. október 2008

  • Kirkjukór Hrunaprestakalls stendur fyrir kórahitting með það að leiðarljósi að hrista sama sem flesta starfandi kóra í nágrenninu
  • Föstudagskvöldið 10. okt. nk. kl 20.30
  • Hver kór fær að troða upp með 3 til 4 lög og stefnum við að því að æfa eitthvað saman líka allir kórarnir.
  • Eitthvað verður á boðstólnum að narta í og bjór til sölu.
  • Þáttökugjald er 1000 kr. á mann
  • Makar hjartanlega velkomnir
21. nóvember 2008
  • Fjáröflunartónleikar í Brautarholti
  • Uppboð og fleira gaman
Desember
  • Í desember verður væntanlega sungið á einhverjum aðventutónleikum, nánar um það síðar.
 
Kórastarfið að hefjast
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

Fyrsta æfing vetrarins verður mánudagskvöldið 15. september kl. 20:30 í Brautarholti

Það verður gaman að hitta ykkur allar að nýju og endilega breiðið út boðskapinn og kippið nýjum félögum með.

Stjórnin

 
Vortónleikar Uppsveitasystra
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

Föstudagskvöldið 18. apríl kl. 20:30 munu Uppsveitasystur halda tónleika í Félagsheimili Hrunamanna. Á efnisskránni er gospeltónlist, negrasálmar og lög úr ýmsum áttum. Einnig koma góðir gestir fram á tónleikunum, en þeir eru Stúlknakórinn Hekla undir stjórn Nínu Maríu Morávek og tvær ungar stúlkur úr Flúðaskóla munu flytja nokkur lög. Stjórnandi Uppsveitasystra er Magnea Gunnarsdóttir og undirleikari er Stefán Þorleifsson. Aðgangseyrir er 1.500 kr. Frítt fyrir grunnskólabörn.

Vonumst til að sjá sem flesta. uss_hopmynd2008_minni.jpg

 
Tónleikar og styrktarlínur
Written by Elín Jóna Traustadóttir   

Uppsveitasystur munu halda sína fyrstu sjálfstæðu vortónleika föstudaginn 18. apríl.  Þar munum við syngja lög frá ýmsum löndum og er þema kvöldsins að stelast burtu og fara heim.

Um þessar mundir erum við að safna styrktarlínum í söngskrána okkar og eru allar klær úti því rekstur kvennakórs kostar sitt eins og allt annað.
Þeir sem eru áhugasamir um að styrkja okkur geta haft samband í netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it   til að senda inn styrktarlínu eða auglýsingu.

  • Styrktarlína (nafn í söngskrá) kr. 2.500
  • Auglýsing (1/4 A4 blað) kr. 5.000
  • Auglýsing (1/2 A4 blað) kr. 15.000
 
More Articles...
«StartPrev12345NextEnd»

Page 2 of 5