Innskráning

Uppskriftahornið PDF Print E-mail

Uppsveita kjúklingasúpa

2 kjúklingabringur
salt
1/2 blaðlaukur, smátt saxaður
1 rauð paprika, smátt söxuð
1 msk. ólífuolía
1 L vatn
1 kjúklingateningur
1 dós saxaðir tómatar
4 msk. chili-sósa
3 msk. tómatþykkni (tomato paste)
100 gr. rjómaostur
Grænmeti að eigin vali (eins og Helena gerði það)
nachos-flögur
Rifinn ostur

Byrjaðu á því að sjóða kjúlingabringurnar í vatni með dálitlu salti þar til þær eru eldaðar í gegn og skerðu þær svo í bita. Steiktu blaðlaukinn og paprikuna í ólífuolíunni við hægan hita. 
Hitaðu vatnið í öðurm potti og leystu kjúklingateninginn upp í vatninu.  Bættu grænmetinu út í kjúklingasoðið ásamt hökkuðum tómötum, chili-sósu og tómatmauki og láttu súpuna malla í 10 mínútur.
Bættu rjómaostinum í súpuna í þremur hlutum og láttu hana malla dálítið á milli svo að rjómaosturinn leysist upp. Bættu að lokum kjúklingabitunum út i. 

Helltu súpunni í skálar og stráðu muldum nachos-flögum og rifnum osti yfir áður en þú berð hana fram.